Free delivery on all orders
Product image 1
Product image 2
Matcha seijaku
yuyu
From 5.690 kr.
Seijaku (静寂) er ceremonial-grade matcha frá yuyu, nýju japansk-íslensku vörumerki sem einbeitir sér að hágæða matcha og japanskri tehefð. Seijaku er sérstaklega þróað fyrir usucha (klassískt matcha-te) og býður upp á bjart, mjúkt og einstaklega aðgengilegt bragð.

Seijaku hentar jafnt fyrir hefðbundna matcha-skál og silkimjúkt matcha latte – fullkomið fyrir daglega matcha-stund. Nafnið Seijaku (静寂) merkir „kyrrð“ á japönsku og er innblásið af rólegum augnablikum í dagsins önn.

Upplýsingar
• Uppskeruár: 2025
• Upprunaland: Japan
• Innihald: 30 g

Undirbúningur

Heitt Matcha
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 65 ml af 70°C heitu vatni. Þeytið með bambuspísk í „N“ eða „W“ hreyfingum þar til létt froða myndast.

Ísað Matcha
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 30–40 ml af 70°C heitu vatni. Þeytið þar til létt froða myndast. Fyllið glas með um 100 g af klaka og 150 ml af vatni. Hellið matcha yfir, hrærið varlega og njótið.

Ísað Matcha Latte
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 50 ml af 70°C heitu vatni. Þeytið í 15–20 sekúndur þar til áferðin verður mjúk og létt froðukennd. Fyllið glas með um 50 g af klaka og 150 ml af haframjólk eða annarri mjólk að eigin vali. Hellið matcha yfir mjólkina, hrærið varlega og njótið.