Ókeypis afhending á öllum vörum
Product image 1
Bruschetta - Pastrami Lax
Brauð & Co
From 23.760 kr.
Ljúffengar bruschetta-snittur frá Brauð & Co með pastrami-laxi á súrdeigsbaguette. Piparrótarkrem og fersk epli fullkomna þessa bragðmiklu samsetningu. Tilvalið á veisluborðið þegar þú vilt bjóða upp á eitthvað gott og einfalda undirbúninginn.

Snitturnar koma á bökkum, tilbúnar að fara beint á borðið.

Innihald:
Súrdeigsbaguette, pastrami-lax, piparrótarkrem og fersk epli.

Pöntun og afhending:
Veldu þína næstu Pikkoló stöð sem afhendingarstað og sæktu þegar þér hentar.

Þú færð SMS með aðgangskóða um leið og pöntunin þín er tilbúin til afhendingar.

Pantanir frá Brauð & Co eru alltaf tilbúnar til afhendingar fyrir kl. 11:00 á afhendingardegi.

Magn og pöntunarfrestur:
Gott er að áætla 5–6 snittur á mann. Lágmarkspöntun er tveir bakkar – 15 snittur á bakka, samtals 30 snittur. Panta þarf með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara.