Ókeypis afhending á öllum vörum


Hlaupasprettur
Vaxa
From 16.900 kr.
Sex vikna áskrift
Ferskar íslenskar brokkolísprettur frá VAXA – Sex vikna áskrift fyrir hlaupara og úthaldsíþróttafólk sem vilja styðja við endurheimt og auka úthald.
Af hverju brokkolísprettur?
Brokkolísprettur eru kraftmikil ofurfæða – rík af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum. Þær innihalda mjög hátt magn af glúkórafaníni sem líkaminn umbreytir í súlfórafan. Súlfórafan er öflugt efni sem hefur verið rannsakað í áratugi og rannsóknir benda til að það geti stuðlað að minni vöðvaskemmdum, minni bólgum og betri endurheimt eftir álag.
✔️ Ríkar af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum
✔️ Geta stutt við endurheimt eftir æfingar og keppni
✔️ Ræktaðar í Reykjavík, frá ræktun á disk samdægurs
✔️ Sjálfbær ræktun knúin hreinni íslenskri orku
✔️ Án varnar- og eiturefna
Sex vikna áskrift inniheldur
Í Hlaupasprettuáskriftinni færð þú afhentan kassa með 14 öskjum af VAXA brokkolísprettum í hverri viku, sem samsvarar tveimur öskjum á dag.
Afhending
Hlaupaspretturnar eru afhentar í þinni næstu Pikkoló-stöð alla fimmtudaga. Þú færð SMS um leið og pöntunin þín er tilbúin og sækir þegar þér hentar.
Ef þú ert á leið í frí og getur ekki sótt er ekkert mál að færa til afhendingar með því að hafa samband við Pikkoló tveim dögum fyrir næstu afhendingu.
Kynningartilboð
Fáðu 6 vikna áskrift en greiddu aðeins fyrir 5 vikur. Fullkomin viðbót í daglega rútínu þeirra sem vilja styðja við heilbrigðan og virkan lífsstíl.


