Ókeypis afhending á öllum vörum
Product image 1
Product image 2
Product image 3
Hojicha tomoshibi
yuyu
From 2.790 kr.
Seijaku (静寂) er hágæða ceremonial-grade matcha frá yuyu, nýju japansk-íslensku vörumerki sem einbeitir sér að hágæða matcha og japanskri tehefð. Nafnið Seijaku merkir „kyrrð“ og endurspeglar rólega og yfirvegaða teupplifun.

Seijaku er þroskað í 12 mánuði áður en það er steinmalað í Japan. Þessi aðferð dregur fram ríkt umami, mildan náttúrulegan sætleika og silkimjúka áferð með löngu og fáguðu eftirbragði.

Matcha-teið hentar einstaklega vel til að njóta hreint sem usucha eða koicha, en skilar einnig einstaklega mjúku og bragðmiklu matcha latte.

Upplýsingar
• Upprunaland: Japan
• Innihald: 30 g
• Þroskað í 12 mánuði

Undirbúningur

Heitt Matcha
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 70 ml af 70–80°C heitu vatni. Þeytið með bambuspísk þar til áferðin verður mjúk og létt froðukennd.

Koicha
Notið 4 g af matcha og 40 ml af 70–80°C heitu vatni. Hrærið varlega þar til teið verður þykkt og silkimjúkt – án froðu.

Ísað Matcha Latte
Þeytið 3 g af matcha með 30 ml af heitu vatni. Hellið yfir klaka og bætið við haframjólk eða annarri mjólk að eigin vali. Hrærið létt og njótið.