Ókeypis afhending á öllum vörum
Product image 1
Product image 2
Product image 3
Blandaðar Sprettur
Vaxa
From 2.390 kr.
VAXA Blandaðar Sprettur 6 öskjur í pakka.

VAXA Blandaðar Sprettur innihalda úrval af því besta sem er í ræktun hverju sinni. Innihalds pakkans getur því verið breytilegt eftir framboði, sem tryggir hámarksferskleika og skemmtilega fjölbreytni í hverri pöntun. Sprettur eru ungar plöntur sem eru uppskornar stuttu eftir að fyrstu blöð myndast. Á þessu stigi eru þær sérstaklega ríkar af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum. Þær henta einstaklega vel í fjölbreytta matargerð – hvort sem er í salöt, samlokur, heita rétti eða sem ferskt skraut á diskinn. VAXA ræktar spretturnar með sjálfbærum aðferðum í hreinu og stýrðu umhverfi, þar sem áhersla er lögð á gæði, ferskleika og sjálfbæra framleiðslu.

Af hverju að velja VAXA Blandaðar Sprettur?

✔️ Ræktaðar í Reykjavík, frá ræktun á disk samdægurs.

✔️ Aldrei fluttar milli landa, þar er hámarksferskleiki tryggður.

✔️ Án varnarefna og eiturefna.

✔️ Sjálfbær ræktun knúin hreinni íslenskri orku.

✔️ Fjölbreytt blanda sem hentar í alla matargerð.

Nánari upplýsingar um spretturnar má finna á vaxafarm.is/sprettur

Pantaðu fyrir miðnætti á þriðjudegi til þess að fá afhent á fimmtudegi.