Ókeypis afhending á öllum vörum
Product image 1
Product image 2
Product image 3
Product image 4
Matcha nagi
yuyu
From 6.590 kr.
Nagi (凪) er fyrsta matcha-teið frá yuyu, nýju japansk-íslensku vörumerki sem einbeitir sér að hágæða matcha og japanskri tehefð. Nagi er hágæða ceremonial-grade matcha sem hentar jafnt fyrir hefðbundið þykkt matcha (koicha) og klassískt matcha-te.

Nafnið Nagi (凪) vísar til kyrrðar hafsins á japönsku og er ætlað að skapa augnablik af ró og núvitund.

Upplýsingar
• Uppskeruár: 2025
• Upprunaland: Japan
• Innihald: 30 g

Undirbúningur

Heitt Matcha
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 65 ml af 70°C heitu vatni. Þeytið með bambuspísk í "N" eða "W" hreyfingum þar til létt froða myndast.

Ísað Matcha
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 30–40 ml af 70°C heitu vatni. Þeytið þar til froða myndast. Fyllið glas með um 100 g af klaka og 150 ml af vatni. Hellið matcha yfir, hrærið létt og njótið.

Ísað Matcha Latte
Sigtið 2 g af matcha í skál og bætið við 50 ml af 70°C heitu vatni. Þeytið í 15–20 sekúndur þar til drykkurinn er mjúkur og létt froðukenndur. Fyllið glas með um 50 g af klaka og 150 ml af haframjólk eða annarri mjólk að eigin vali. Hellið matcha yfir, hrærið létt og njótið.